
|
|
Lög
Lög Félags fagfólks um offitu
1. gr. Félagið heitir Félag fagfólks um offitu eða FFO.
2. gr. Tilgangur félagsins er að: a) Stuðla að rannsóknum og aukinni þekkingu á offituvandamálum á Íslandi. b) Efla forvarnir gegn offituvandanum, meðal annars með fræðslu og stuðningi við þá sem að þeim starfa. c) Miðla þekkingu um offitusjúkdóma og offitumeðferð. d) Bæta þjónustu við offitusjúklinga.
3. gr. Félagið er þverfaglegt og rétt til inngöngu í félagið á fagfólk innan heilbrigðisgeirans og aðrir sem hafa áhuga á rannsóknum, forvörnum og meðferð á offituvandamálum. Geta þeir sótt um aðild að félaginu með samþykki stjórnar.
4. gr. Stjórn félagsins skipa sjö menn. Formaður, gjaldkeri, ritari og fjórir meðstjórnendur er kosnir á aðalfundi til tveggja ára í senn.
5. gr. Formaður ákveður hvenær halda skuli stjórnarfund, en auk þess skal haldinn stjórnarfundur, ef tveir stjórnarmenn hið minnsta krefjast þess. Stjórnarfundur er löglegur ef fjórir stjórnarmenn sitja hann.
6. gr. Aðalfundur kýs í nefndir félagsins, 4 menn í hverja nefnd.
7. gr. Aðalfund skal halda í nóvember ár hvert. Stjórn félagsins ákveður dagskrá aðalfundar og boðar hann með minnst tveggja vikna fyrirvara.
Dagskrá aðalfundar: e) Skýrsla stjórnar. f) Endurskoðað reikningsuppgjör gjaldkera. g) Ákvörðun árgjalds. h) Kosning stjórnar og tveggja skoðunarmanna reikninga. i) Kosning nefnda. j) Önnur mál.
8. gr. Halda skal auka aðalfund í félaginu ef fjórðungur félagsmanna fer fram á það skriflega. Dagskrár skal getið í fundarboði sem sent er til félagsmanna, minnst tveimur vikum fyrir fundinn.
9. gr. Lögum þessum má eigi breyta nema á aðalfundi og þarf samþykki minnst 2/3 hluta fundarmanna til þess. Tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist stjórn minnst fjórum vikum fyrir aðalfund og skulu þær fylgja fundarboði.
10. gr. Félagið verður lagt niður æski tveir þriðju hlutar félagsmanna þess. Skal eignum þess varið til rannsókna á offitusjúkdómum. |
Á döfinni
Atburđadagatal
Fróđleiksmolar
Vissir þú að... ... börn eiga að horfa skemur en 2 klst á tölvu- eða sjónvarpsskjá á dag? |
| © 2007- 2008 Félag fagfólks um offitu Innskráning |