Um félagiđ

Félag fagfólks gegn offitu var stofnað árið 2002. Fjöldi félagsmanna er nú um 80. Hvatinn að stofnun félagsins er hratt vaxandi offituvandi og þörf fyrir vettvang til að fjalla um rannsóknir og úrræði til þess að sporna við þeirri þróun.

Tilgangur með stofnun félagsins var :

• Rannsóknir: Stuðla að rannsóknum og aukinni þekkingu á offituvandamálum á Íslandi, svo sem faraldursfræði, eðli og orsökum, afleiðingum, forvörnum og meðferð.

• Forvarnir: Efla forvarnir gegn offitu, meðal annars með fræðslu og stuðningi við þá sem að forvörnum starfa

• Meðferð: Stuðla að bættri meðferð við offitu.

• Fræðsla: Miðla þekkingu um tengsl offitu og sjúkdóma og offitumeðferð meðal fagfólks og almennings.

• Alþjóðleg tengsl: Taka þátt í alþjóðlegu samstarfi á sviði offitu.

• Ráðgjöf: Félagið eða nefndir þess geti verið ráðgefandi fyrir stjórnvöld og aðra opinbera aðila um málefni sem snerta forvarnir gegn offitu og meðferð.

Á döfinni

Atburđadagatal

Fróđleiksmolar

Vissir þú að...

...grænmeti og ávextir eru mikilvægir þættir í hollu mataræði sem eflir og viðheldur góðri heilsu.
© 2007- 2008 Félag fagfólks um offitu     Innskráning DesignEuropA - We make you look different